Government Offices of Iceland

06/19/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/19/2026 09:26

Drög að byggðaáætlun birt í samráðsgátt

Innviðaráðuneytið hefur birt hvítbók um byggðamál í samráðsgátt stjórnvalda. Hvítbókin hefur að geyma drög að stefnumótandi byggðaáætlun til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026.

Samráð og samhæfing eru leiðarljós við endurskoðun byggðaáætlunar. Samráðið hefur meðal annars falist í því að haldnir voru margir fundir, m.a. íbúafundir með ráðherra, á vettvangi landshlutasamtaka sveitarfélaga og með öllum ráðuneytum. Áherslur og aðgerðir áætlunarinnar byggja að verulegu leyti á sjónarmiðum og tillögum sem fram hafa komið í samráðsferlinu og voru í framhaldinu mótaðar í samstarfi við þau ráðuneyti sem bera ábyrgð á viðkomandi málaflokkum. Byggðaáætlun er þannig mótuð frá grunni (e. bottom-up), þar sem þekking og reynsla fólksins sem býr og starfar um land allt er lögð til grundvallar stefnumótuninni. Jafnframt var markvisst leitað leiða til að samhæfa byggðaáætlun við aðrar opinberar stefnur og áætlanir í nánu samráði við viðkomandi ráðuneyti.

Hið breiða eignarhald sem hefur skapast í gegnum samráð við mótun og framkvæmd byggðaáætlunar gefur henni aukið vægi og ýtir undir samfélagsleg áhrif hennar.

Fjölbreyttar aðgerðir

Í hvítbókinni eru lagðar fram tillögur að 41 aðgerð. Aðgerðirnar eru fjölbreyttar og snerta málefnasvið allra ráðuneyta en hvert þeirra ber ábyrgð á minnst einni aðgerð. Sem dæmi eru aðgerðir sem bæta aðgengi að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu, auka möguleika barna og ungmenna að þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi, flýta lagningu bundins slitlags á tengivegum, auka nýliðun í landbúnaði, auka framboð á háskólanámi, meta fýsileika þess að beita efnahagslegum hvötum sem tæki í byggðaþróun, stuðla að dreifðari orkuvinnslu, aðlögun sveitarfélaga að loftslagsbreytingum, taka á stuðningi við innflytjendur, samstarfi almannavarnafulltrúa og að efla samkeppnishæfni landsins.

Jafnframt eru í hvítbókinni aðgerðir sem eru beint framhald aðgerða í gildandi byggðaáætlun og má þar nefna brothættar byggðir, sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða, stuðning við verslun í minni byggðalögum og óstaðbundin störf.

Að loknu samráðsferli verður farið yfir umsagnir og unnin þingsályktunartillaga sem innviðaráðherra áætlar að leggja fram á Alþingi haustið 2026.

Government Offices of Iceland published this content on June 19, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 19, 2026 at 15:26 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]