Government Offices of Iceland

04/04/2024 | Press release | Distributed by Public on 04/04/2024 11:51

Forsætisráðherra flutti ávarp á ársfundi Seðlabankans

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands sem fram fór í Hörpu í dag.

Í ávarpinu fór forsætisráðherra yfir stöðuna í efnahagsmálum og verðbólguna sem sé nú meginviðfangsefni hagstjórnar hér á landi eins og víða annars staðar. Góð teikn hafi þó birst undanfarið. Verðbólga hafi hjaðnað og þá muni nýgerðir langtímakjarasamningar á almennum vinnumarkaði koma til með að eiga mikilvægan þátt í að skapa forsendur fyrir minnkandi verðbólgu og lækkun vaxta á næstunni.

"Ég er bjartsýn á að aðrir hópar á almennum vinnumarkaði og starfsfólk hjá hinu opinbera muni fylgja á eftir og semja á sambærilegum grunni. Það er sömuleiðis trú mín að þær aðgerðir sem ríki og sveitarfélög hafa ákveðið að ráðast í til að styðja við samningana muni skila sér í bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks, samhliða því að verðbólgan færist aftur í átt að markmiði," sagði forsætisráðherra.

Þá fjallaði hún um eldsumbrotin á Reykjanesskaga og þær margvíslegu efnahagslegu aðgerðir sem ráðist hefur verið í til að styðja við íbúa Grindavíkur sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín og atvinnustarfsemi á svæðinu. Um sé að ræða fordæmalitla stöðu og ýmis viðfangsefni fram undan sem greiða þurfi úr í þessu óvissuástandi sem erfitt er að segja til um hvað muni vara lengi.

Forsætisráðherra kom einnig inn á mikilvægi þess að koma á fót innlendu greiðslumiðlunarkerfi. Slíkt skapi bæði ávinning fyrir neytendur og tryggi öryggi og viðnámsþrótt kerfisins en forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpi þess efnis á Alþingi í febrúar sl.

Þá vék hún máli sínu að mikilvægi þess að erlendar fjárfestingar í mikilvægum innviðum og annarri samfélagslega mikilvægri starfsemi hér á landi séu í samræmi við þjóðaröryggi. Frumvarp þess efnis var lagt fyrir Alþingi fyrr á árinu sem forsætisráðherra mælti fyrir í mars.

Ávarp forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans.

Government Offices of Iceland published this content on April 04, 2024, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on April 04, 2024 at 17:51 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]