04/01/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/01/2026 05:18
Flutningar forstöðumanna sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni standa nú fyrir dyrum. Um er að ræða reglubundna flutninga sem jafnan eru ákveðnir að hausti en tilkynntir þegar samþykki gistiríkja liggja fyrir.
Miðað er við að neðangreindir flutningar taki gildi 1. ágúst nk.
Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra, flyst frá utanríkisráðuneytinu til starfa sem sendiherra Íslands í Peking. Hún tekur við af Þóri Ibsen, sem fer í námsleyfi og lýkur störfum í kjölfarið.
Bryndís Kjartansdóttir, sendiherra Íslands í Stokkhólmi, flyst til starfa sem fastafulltrúi Íslands gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu í Vín. Hún tekur við af Helgu Hauksdóttur, sem flyst til starfa í ráðuneytið.
Elín Rósa Sigurðardóttir, skrifstofustjóri, flyst frá ráðuneytinu til starfa sem sendiherra Íslands í Stokkhólmi.
Ragnar Kristjánsson, skrifstofustjóri, flyst frá ráðuneytinu til starfa sem sendiherra Íslands í Osló. Hann tekur við af Högna Kristjánssyni, sem flyst til starfa í ráðuneytið.
Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ, flyst frá ráðuneytinu til starfa sem sendiherra Íslands í Helsinki. Hún tekur við af Haraldi Aspelund, sem flyst til starfa í ráðuneytið.
Katrín Einarsdóttir, prótókóllstjóri, flyst frá ráðuneytinu til starfa sem forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala. Hún tekur við af Hildigunni Engilbertsdóttur, sem flyst til starfa í ráðuneytið.
Tómas Orri Ragnarsson, deildarstjóri, flyst frá ráðuneytinu til starfa sem aðalræðismaður Íslands í Nuuk. Hann tekur við af Þórði Bjarna Guðjónssyni, sem lætur af störfum sökum aldurs.