Central Bank of Iceland

06/23/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/23/2026 09:22

Uppfærður listi yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð, sbr. 6. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Á listanum er annars vegar um að ræða ríki sem Alþjóðlegi fjármálaaðgerðahópurinn (e. Financial Action Task Force, FATF) hefur tilgreint sem áhættusöm og eftir atvikum ósamvinnuþýð og hins vegar ríki sem Evrópusambandið hefur tilgreint sem áhættusöm þriðju lönd, sbr. reglugerð nr. 1221/2025 um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 105/2020.

FATF eru alþjóðleg samtök sem hafa það m.a. að markmiði að setja tilmæli vegna aðgerða gegn peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og fjármögnun gereyðingarvopna. Meðal verkefna samtakanna er að tilgreina ríki sem teljast áhættusöm og eftir ósamvinnuþýð, sjá nánar á heimasíðu FATF.

Að þessu sinni er um að ræða breytingar á lista FATF yfir áhættusöm ríki vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka en Bosnía og Hersegóvína og Írak bætast við listann.

Sjá nánar: Seðlabanki Íslands | Áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki

Central Bank of Iceland published this content on June 23, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 23, 2026 at 15:22 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]