Ministry of Higher Education, Industry and Innovation of Iceland

06/30/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/30/2026 08:32

Rannsóknir sem styrkja viðbúnað Íslands gegn náttúruvá

Fimm rannsóknaverkefni sem hlutu nýverið styrki úr markáætlun um náttúruvá voru kynnt í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu að viðstöddum ráðherra og gestum. Verkefnunum er ætlað að stórefla þekkingu, bæta forvarnir og styðja við betri ákvarðanatöku þegar náttúruógnir steðja að. Markáætlun um náttúruvá heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og er heildarupphæð styrkja um 600 milljónir króna. Verkefnin endurspegla þá fjölbreyttu þekkingaruppbyggingu sem nú á sér stað á sviði náttúruvár á Íslandi og hvernig rannsóknir geta stutt stjórnvöld, viðbragðsaðila, atvinnulíf og almenning.

Logi Einarsson ráðherra ávarpaði gesti og lagði í máli sínu áherslu á mikilvægi rannsókna fyrir öryggi samfélagsins.

"Þekking er öflugasta verkfærið sem við eigum til að byggja upp öruggara samfélag. Með rannsóknum og tækniframförum getum við aukið viðbúnað, dregið úr áhættu og eflt viðnámsþrótt samfélagsins. Þótt náttúruöflin verði aldrei fyllilega fyrirsjáanleg höfum við lært að greina betur merki þeirra og skilja þau. Sú þekking gerir okkur kleift að verja mannslíf, innviði og verðmæti. Verkefni okkar er að halda áfram að efla þá þekkingu og þróa enn betri lausnir," segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Styrkt verkefni ársins 2026 taka á ólíkum en samtengdum þáttum náttúruvár:

  • REY-READY þróar nýjar aðferðir til að vakta jarðskjálfta og kvikuhreyfingar á Reykjanesskaga og mun bæta forspárgetu og áhættumat fyrir eitt virkasta eldfjallasvæði landsins.
  • Að lifa við vá rannsakar hvernig draga megi úr áhættu vegna öfgaveðurs á hálendi Íslands og styrkja öryggi ferðamanna, björgunarsveita og nærsamfélaga.
  • Ljósvari nýtir ljósleiðarainnviði landsins til að fylgjast með eldgosum, skriðuföllum og snjóflóðum í rauntíma og styrkir þannig náttúruvárvöktun með nýrri tækni.
  • TRACE rannsakar mögulega framtíðarvirkni eldstöðvakerfisins í Krýsuvík og mun bæta skilning á áhættu sem tengist jarðskorpuhreyfingum á svæði sem nær að útjaðri höfuðborgarsvæðisins.
  • INSPIRE þróar samþætt kerfi til að meta áhrif jarðskjálfta á byggingar og innviði og styðja við hraða og markvissa ákvarðanatöku eftir náttúruhamfarir.
    Verkefnin sýna hvernig öflug samvinna háskóla, rannsóknastofnana, opinberra aðila og atvinnulífs getur skilað nýrri þekkingu sem nýtist íslensku samfélagi til langs tíma. Með fjárfestingu í rannsóknum á náttúruvá er lagður grunnur að auknu öryggi, markvissari vöktun, viðbrögðum og aukinni seiglu samfélagsins.

Lesa má nánar um styrkt verkefni hér

*Náttúruvá er sérhvert það ástand í náttúrunni sem ógnar og gæti þannig orðið að válegum atburði, valdið skaða, aðstöðu- og eignartjóni eða mannfalli eftir atvikum. Munurinn á náttúruhamförum og náttúruvá er fyrst og fremst sá að náttúruvá vofir yfir, en náttúruhamfarir eiga sér stað. (vísindavefurinn.is)

Ministry of Higher Education, Industry and Innovation of Iceland published this content on June 30, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 30, 2026 at 14:32 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]