08/07/2026 | Press release | Distributed by Public on 08/07/2026 12:15
Dómsmálaráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, Samtökin '78, Samtök atvinnulífsins og heildarsamtök launafólks undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf sem er ætlað að efla jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á íslenskum vinnumarkaði.
Undirritunin fór fram í Iðnó á viðburði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ í tilefni Hinsegin daga.
"Það hallar á efnahagslega stöðu hinsegin fólks á Íslandi. Ljóst er að hluti vandans er mismunun á vinnumarkaði. Sem ráðherra jafnréttismála stend ég þétt við bakið á hinsegin fólki á Íslandi. Samstarf verkalýðshreyfingarinnar, atvinnulífsins og stjórnvalda mun skipta sköpum við að tryggja raunverulegt jafnrétti á vinnumarkaði," segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Með viljayfirlýsingunni á að vinna markvisst að því að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Stofnaður verður aðgerðarhópur sem á að þróa fræðsluefni, verkfæri og aðgerðir fyrir vinnustaði og auka á þekkingu með rannsóknum og greiningum.
Aðgerðarhópurinn mun meðal annars byggja á þeirri reynslu og þekkingu sem skapast hefur í gegnum Hinsegin vottun Samtakanna '78 og leiðbeiningar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um inngildingu hinsegin fólks á vinnumarkaði.
Markmiðið er að starfsfólk finni fyrir öryggi og líði vel á vinnumarkaði en það skilar vinnustöðum betri árangri og samfélaginu í heild jákvæðum áhrifum.
"Með þessari yfirlýsingu skuldbindum við okkur til að vinna saman að því að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Baráttan fyrir jafnrétti er viðvarandi verkefni og ég er stoltur af því að fá að taka þátt í henni. Ég er sannfærður um að vinnan fram undan muni skila raunverulegum árangri," segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.