11/26/2026 | Press release | Distributed by Public on 11/26/2026 12:11
26.11.2026
Þann 19. nóvember síðastliðinn veitti Arion banki verðlaun fyrir þrjár bestu hugmyndirnar í námskeiðinu Viðskiptaáætlanir við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Arion banki hefur undanfarin ár stutt við umrætt námskeið og verðlaunað nemendur fyrir bestu hugmyndirnar sem þar fæðast.
Afhending verðlaunanna fór fram á sal Arion banka í Borgartúni 19. Elísabet Árnadóttir, svæðisstjóri á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka, flutti stutt erindi fyrir hönd bankans. Ásta Dís Óladóttir, forseti viðskiptafræðideildar, kynnti svo sigurvegarana á svið og Elísabet veitti þeim verðlaunin.
Nammiport hlaut fyrstu verðlaun, 250 þúsund krónur. Um er að ræða viðskiptahugmynd sem gengur út á að færa sænska lausasölumenningu í sælgæti til Íslands. Nemendurnir á bak við Nammiport eru Emil Bjartur Sigurjónsson, Vigfús Hreiðar Róbertsson, Þengill Þrastarson og Þórarinn Helgason.
Önnur verðlaun, 125 þúsund krónur, hlaut gervigreindarlausnin Trausti, sem er gervigreindardrifinn og talstýrður aðstoðarmaður fyrir verktaka, iðnaðarmenn og einyrkja. Nemendurnir á bak við Trausta eru Aron Elís Þrándarson, Birgir Ari Óskarsson, Dagur Sampsted, Elí Tómas Kurtsson og Torfi Geir Halldórsson.
Lava Varmer - hiti frá landi íss og elda, hugmynd að innflutningi og markaðssetningu endurhlaðanlegra handhitara með íslensku þema, hafnaði svo í þriðja sæti og hreppti 75 þúsund krónur. Nemendurnir á bak við Lava Varmer eru Arna Hrund Þrastardóttir, Karen Ósk Kjartansdóttir, Kristín Lind Helgadóttir, María Rún Jóhannsdóttir og Sesselja Helgadóttir.
Auk verðlauna fyrir bestu viðskiptahugmyndirnar voru veitt sérstök verðlaun fyrir framúrskarandi viðskiptaáætlun og hæstu einkunn námskeiðsins. Þau hlaut verkefnið Skyrsósur, sem byggist á því að þróa matarsósur þar sem skyr kemur í stað olíu með það að markmiði að bjóða hollari valkost. Nemendurnir á bak við Skyrsósur eru Aron Elí Guðnason, Elvar Þór Ægisson, Gunnar Örn Kárason, Marta Brynjólfsdóttir og Ársól Erla Árnadóttir.
Elísabet Árnadóttir, svæðisstjóri á fyrirtækja- og fjárfestingabankasviði Arion banka:
"Það var virkilega gaman að taka þátt í þessu verkefni, fyrst sem gestafyrirlesari, svo í dómnefnd og að lokum þegar við í Arion tókum á móti nemendum áfangans og afhenda verðlaunin í Arion banka. Það var ánægjulegt að sjá hvernig nemendur nýttu efni fyrirlestranna um stofnun og fjármögnun fyrirtækja og um stjórnun og skipulag í áætlununum sínum. Hóparnir höfðu hugað vel að fjármögnun, hvort sem var með lánsfé eða hlutafé, og það skiptir miklu máli þegar góð viðskiptaáætlun á að verða að raunverulegum fyrirtækjarekstri. Það var líka frábært að fá tækifæri til að kynna Arion sem vinnustað fyrir þessum öfluga hópi."
Deila grein: