Central Bank of Iceland

11/25/2026 | Press release | Distributed by Public on 11/25/2026 04:12

Ný rannsóknarritgerð um aðferðir við að spá hagvexti á hverjum tíma

Seðlabanki Íslands hefur gefið út rannsóknarritgerðina "Nowcasting Icelandic GDP growth: can mixed-frequency bayesian VARs improve real-time nowcasts?" eftir Melkorku Ýr Bustos meistaranema við Barcelona School of Economics og Bjarna G. Einarsson, hagfræðing hjá Seðlabankanum.

Rannsóknin kannar hvort bayesísk VAR-líkön af blandaðri tíðni bæti rauntíma spár um hagvöxt á Íslandi samanborið við hefðbundið bayesískt VAR-líkan á ársfjórðungslegri tíðni. Skoðaðar eru tvær nálganir á hvernig tekið er tillit til hagvísa sem birtast á hærri tíðni en ársfjórðungslegri: Blocking and stacking BVAR og Cube Root BVAR. Frammistaða þeirra er borin saman við ársfjórðungslegt BVAR og einfalt sjálffylgnilíkan yfir tímabilið 2010 til 2025 og á hverjum tímapunkti sem spá er framkvæmd er aðeins tekið tillit til þeirra gagna sem voru til reiðu á þeim tíma. Í lok hverrar viku tímabilsins eru líkönin notuð til að spá fyrir þáverandi ársfjórðung sem gefur 808 spár fyrir hvert líkan. Niðurstöðurnar sýna að Cube Root BVAR-líkanið stendur sig best af öllum líkönum og lækkar spáskekkjur um allt að 7 prósent samanborið við ársfjórðungslega BVAR-líkanið. Niðurstöðurnar benda til þess að það að taka tillit til upplýsinga sem birtast á hærri tíðni getur veitt hagstjórnaraðilum nytsamlegt rauntímamat á hagvexti.

Ritið er aðgengilegt hér fyrir neðan:

Central Bank of Iceland published this content on November 25, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on November 25, 2026 at 10:12 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]