06/23/2026 | Press release | Archived content
Loftslags- og orkusjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til uppsetningar hleðsluinnviða við gististaði á Íslandi.
Styrkirnir eru liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru á fréttamannafundi í apríl vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og aukinnar óvissu á alþjóðlegum orkumörkuðum vegna stríðsátaka við Persaflóa. Samhliða lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti af dælu voru kynntar aðgerðir sem miða að hraðari rafbílavæðingu. Loftslags- og orkusjóður hefur þegar auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla um allt land með það að markmiði að loka gatinu í hraðhleðsluneti á helstu þjóðvegum og í þéttbýliskjörnum, auk þess sem auglýstir voru styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús í þeim tilgangi að auka aðgengi almennings að hleðslustöðvum. Samhliða vinna stjórnvöld að breytingum sem eiga að einfalda og samræma greiðslufyrirkomulag við hleðslu rafbíla með það að markmiði að hægt verði að greiða með greiðslukorti í stað ólíkra snjallforrita á mismunandi hleðslustöðvum.
Styrkhæf teljast verkefni sem fela í sér að minnsta kosti uppsetning tveggja nýrra hleðslustöðva (2x 22 kW) sem skulu vera aðgengilegar gestum gististaðarins. Þá skuldbindur styrkþegi sig til að reka hleðslustöðvarnar í að lágmarki fimm ár frá gangsetningu.
Styrkupphæð getur numið allt að einni milljón króna fyrir hvert verkefni og er styrkhlutfall allt að 33% af styrkhæfum kostnaði. Styrkurinn er ætlaður rekstrarleyfishöfum hótela og stærri gististaða, en rekstraraðilar hleðslustöðva geta einnig sótt um liggi samstarfssamningur við rekstrarleyfishafa viðkomandi gististaðar fyrir.
Opnað verður fyrir umsóknir 1. júlí og lokafrestur er til 15. október 2026, kl. 15. Frekari upplýsingar finna á vef Loftslags- og orkusjóðs, sem fer með umsjón með auglýsingu og umsýslu styrkjanna.
Hleðsluinnviðir við gististaði