Government Offices of Iceland

06/09/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/09/2026 11:54

Ragnar Þór ávarpaði aðildarríkjaþing um réttindi fatlaðs fólks í New York

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, flutti í dag ávarp Íslands á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk. António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, setti þingið nú í morgun í höfuðstöðvum SÞ í New York.

Í ávarpinu fór Ragnar Þór yfir helstu breytingar sem orðið hafa hér á landi í málefnum fatlaðs fólks frá síðasta þingi. Mikilvægasta skrefið hafi verið stigið þegar Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

"Með þeirri ákvörðun voru réttindi fatlaðs fólks enn frekar styrkt í íslenskri löggjöf," sagði ráðherra og undirstrikaði að Ísland legði áherslu á að tryggja fötluðu fólki jöfn réttindi, fulla þátttöku og raunverulega inngildingu á öllum sviðum samfélagsins.

Á síðasta ári hefði Mannréttindastofnun Íslands enn fremur tekið til starfa sem sjálfstæð stofnun á vegum Alþingis og nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekið gildi. Þá hefðu íslensk stjórnvöld nýverið lokið ferli vegna fullgildingar valfrjálsrar bókunar við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

"Þessi árangur endurspeglar skýran vilja íslenskra stjórnvalda til að efla jafnrétti, þátttöku og mannréttindi fatlaðs fólks," sagði ráðherra.

Réttindi fatlaðs fólks á heimsvísu

Aðildarríkjaþingið er helsti alþjóðlegi vettvangur Sameinuðu þjóðanna til að fylgja eftir framkvæmd samningsins um réttindi fatlaðs fólks. Þar koma saman fulltrúar ríkja, hagsmunasamtaka og fatlaðs fólks víðs vegar að úr heiminum til að miðla reynslu sinni og ræða framgang réttinda fatlaðs fólks.

Samhliða fundarsetunni í vikunni mun félags- og húsnæðismálaráðherra eiga tvíhliða fundi og taka þátt í hliðarviðburðum og margvíslegri dagskrá.

Þingið fer fram í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.

Government Offices of Iceland published this content on June 09, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 09, 2026 at 17:54 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]