03/06/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/06/2026 07:55
Þann 12. janúar 2026 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til ráðherra. Það er niðurstaða dómnefndar að Særún María Gunnarsdóttir sé hæfust umsækjenda til að hljóta skipun í hið lausa embætti.
Dómnefndina skipuðu: Ása Ólafsdóttir formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.