Government Offices of Iceland

03/26/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/26/2026 10:15

JEF öryggis- og varnarsamstarfið beinir sjónum að Norðurslóðum

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force - JEF) í Helsinki ásamt leiðtogum Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og forsætisráðherrum Bretlands og Hollands. Auk leiðtoga JEF-ríkjanna ávarpaði forseti Úkraínu og forsætisráðherra Kanada fundinn.

Öryggis- og varnarmál Evrópu voru rædd á yfirgripsmiklum fundi þar sem m.a. var rætt um aðgerðir og aukinn viðbúnað JEF-ríkjanna gegn fjölþáttahernaði, þróun öryggismála á Norðurslóðum og í Norður-Atlantshafi, stuðning við Úkraínu auk aðgerða til að þrengja að skuggaflota Rússa og hlutverk ríkjasamstarfsins fram undan.

Á fundinum var jafnframt ákveðið að forsætisráðherra Íslands yrði gestgjafi leiðtogafundar JEF-ríkjanna á næsta ári. Leiðtogarnir ræddu stöðu mála í Úkraínu en JEF-ríkin hafa verið í fararbroddi þeirra sem veitt hafa Úkraínu pólitískan og fjárhagslegan stuðning í formi hergagna, búnaðar og þjálfunar. Þá var rætt um Atlantshafstengslin og upptakt að næsta leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Ankara í sumar.

Ísland næsti gestgjafi JEF

"Ég fagna því að leiðtogarnir þiggi boð okkar um að halda næsta JEF-fund á Íslandi, í fyrsta sinn. Þannig leggjum við okkar lóð á vogarskálarnar í samstarfinu og beinum jafnframt sjónum að stöðu mála á Norðurslóðum, á okkar svæði," segir forsætisráðherra.

JEF er vettvangur ríkja sem er ætlað að efla samvinnu milli ríkja í Norður-Evrópu á grundvelli svæðisbundinna hagsmuna og styðja þannig við varnarviðbúnað Atlantshafsbandalagsins. JEF-ríkin hafa lagt aukna áherslu á að mæta fjölþáttaógnum með áherslu á eftirlit á hafi m.a. með neðansjávarinnviðum og eftirlit með skipum sem tilheyra skuggaflota Rússa.

"JEF-samstarfið er ákaflega mikilvægt fyrir Ísland, íslenska öryggis- og varnarhagsmuni og getu okkar til að hafa eftirlit með og bregðast við hugsanlegum ógnum í okkar nágrenni," segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

"Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá aukna áherslu á Norður-Atlantshafið og Norðurslóðir sem fellur mjög vel að þeim áherslum sem birtast í nýsamþykktri stefnu í varnar- og öryggismálum," segir forsætisráðherra.

Sameiginleg yfirlýsing leiðtoga JEF-ríkjanna var samþykkt á fundinum í Helsinki í dag.

Government Offices of Iceland published this content on March 26, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 26, 2026 at 16:15 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]